Þetta er bara létt upphitun því að i morron er stefnan tekin á Torsdagspubinn til að fagna því að það er aldrei skóli á föstudögum. Auk þess hefur alltaf verið föller á fimmtudögum - við breytum því ekkert.
Nú svo á föstudag neyðist ég til að fá mér ofurlítið í tánna með Bigga og félögum hans sem eru að koma frá litla steininum þarna í norðri. Þeir virðast líka vera með mjög einbeittan brotavilja og ætla að vera blekaðir allan tímann.
Á laugardag eru tómleikar með Smashing Pumpkins. Verri helmingur hins illa samklofnings Sigsteins kemur líka og gistir í fangarúminu. Þarf að gera honum eitthvað illt. Málið er í nefnd.
Á sunnudaginn tökum við svo pókermót og höldum okkur rökum til að ná mjúkri lendingu á mánudaginn.
Þetta er vinna og aftur vinna.
Hugleiðing dagsins: Hvað er að þessum gaurum?