Monday, March 17, 2008

Totenstille?

Yfir Stokkhólmi er 1013 millibara Beggi frændi sem þokast austur.

Hier geht vor die Wäsche, Cholera - Um einstökunga

Var að þvo þvott. Meðal annars voru nokkur pör af sokkum sem fóru í vélina. Svo fer ég að pikka upp þvottinn, glaður í bragði, þegar veröldin hrynur. Út úr vélinni koma 2-3 pör af sokkum og restin bara einstökungar. ??! Hvað verður um þessa fökking sokka? Ég prófaði að senda póst á KTH Accommodation en þeir vissu ekkert hvað varð um þá. Þá hringdi ég í framleiðanda þvottavélarinnar en þeir voru bara með skæting. Þið vitið, þetta er bara svo mikið högg. Skiljiði?

Fyrir skákmenn

Ætli Björn Þorsteinsson hlusti á Stranglers?

Annað

Annars er ekkert sérstakt að frétta síðan síðast. Dr-death kom í heimsókn til að kíkja á Smashing Pumpkins og detta pínulítið í það. Ljósabekkjadrengurinn úr Ofanleitinu gerði grín að því að við Siggi mættum báðir í bláum skyrtum á tónleikana. Það er víst svipað slæmt og að deila með núlli í Verzló.

Á döfinni er heimsókn frá miklum snillingum yfir Páskana. Gvenni og Suðlaug ásamt Tótenhósen og Bragi Sveinsson eru að koma í ruglið til okkar S&E núna í vikunni (lesist með rödd Tóta úr Íslenska drauminum).

Hugleiðing dagsins: Ef maður deyr úr of stórum skammti af Viagra, hvernig yrði líkkistunni þá lokað?