Tuesday, April 1, 2008

Vor í lofti?

Jæja, loksins farið að hlýna hérna í Rokkhólmi. Á að fara í 11 stig í dag. Mér finnst það í góðu lagi.

Helgin var helvíti góð. Byrjað á að hita upp með badmintoni á föstudag þar sem úlnliðurinn var að gera góða hluti (fátt um fína drætti?). Við Haukur sigldum svo í bæinn um kveldið og hittum lögfræðipíur sem heita meira og minna allar Maja.

Nú svo á laugardaginn var það pókerinn hjá Biggzenegger og lifrin látin hafa það óþvegið. 750 ml af Tópasi fóru á svona 10 mín. Freyðivínsflaska drukkin af stút o.s.frv. Endaði í gítarpartíi hjá Freysa og svo heim með morgunstrætó bara.

Semsagt. Gott.

Nokkrar staðreyndir:

  • Basshunter er ekki cool
  • Ég á ekki heima á Gullmarsplan
  • Biggi var í Verzló
  • Fólk sem talar í myndlíkingum ætti að sápa á mér klofið
Ljóð:

Einu vil ég gera skil
um eðli sveina og snóta.
Ástin byrjar ofantil
en endar á milli fóta.

Hugleiðing dagsins: Ættu betlarar að ganga með posa?