Wednesday, February 27, 2008

Sótsvartastjörnumökkun

Jæja, þá er Onsdagspub i kväll - þar sem bjórinn flæðir eins og vín, samkvæmt Bigganum. Þetta er svona hittingur hjá Íslendingunum hérna. Hittumst á bar og fáum okkur bjór og svona af því að það er aldrei skóli á fimmtudögum.

Þetta er bara létt upphitun því að i morron er stefnan tekin á Torsdagspubinn til að fagna því að það er aldrei skóli á föstudögum. Auk þess hefur alltaf verið föller á fimmtudögum - við breytum því ekkert.

Nú svo á föstudag neyðist ég til að fá mér ofurlítið í tánna með Bigga og félögum hans sem eru að koma frá litla steininum þarna í norðri. Þeir virðast líka vera með mjög einbeittan brotavilja og ætla að vera blekaðir allan tímann.

Á laugardag eru tómleikar með Smashing Pumpkins. Verri helmingur hins illa samklofnings Sigsteins kemur líka og gistir í fangarúminu. Þarf að gera honum eitthvað illt. Málið er í nefnd.

Á sunnudaginn tökum við svo pókermót og höldum okkur rökum til að ná mjúkri lendingu á mánudaginn.

Þetta er vinna og aftur vinna.

Hugleiðing dagsins: Hvað er að þessum gaurum?

6 comments:

Siggi said...

Ég veit ekki hvað er að gaurnum hægra megin en sá vinstra megin er ekki með lifur

innevS said...

Hommagangur er einmitt það sem þessi mynd öskraði á mig þegar ég sá hana fyrst. Great minds...

innevS said...

Erfitt að blgga meira?

Stefán Freyr said...

Lifur, smifur, hún er bara fyrir kjellingar og homma. -Sem gefur til kynna að maðurinn hægra megin sé einmitt með tvær.

Siggi said...

Betra er að hafa tvær lifrar í iðrum en eina í haus

Single said...

Bjergsteinn Olav!!!! Ert þú bara að blogga hér í laumi? Stakkels Annsi bara kaldur úti?

Kv. AnnaHera