Tuesday, February 26, 2008

Svíar

Ljóst hár, stífgreitt aftur, V-hálsmál niður að þind sem afhjúpar vel rakaða bringuna, gallabuxur sem eru þrengri en anusinn á þeim, támjóir skór og trefill. Snus í vörinni.

Hvað getur maður sagt? Í fyrsta tímanum sem ég sótti hérna s.l. haust leið mér eins og ég væri staddur í Dressman auglýsingu. Ekki nema von að flikkurnar hérna séu ringlaðar - engin leið að vita í hvaða liði þessir menn spila. Þannig að þær urðu mjög glaðar að hitta fyrir Íslending með skakka tönn og skalla - stútfullan af estrógeni og með fallegan og heilbrigðan skeggvöxt. Enda þurfti ég að slá þær af mér eins og flugur og vingast við eina Verzlinginn í kúrsinum.

Annars eru allra þjóða kvikindi hérna í skólanum. Mikið af Suður-Evrópubúum, Þjóðverjum og kúkafrökkum og töluvert af Asíubúum. Svíarnir eru þó mest pirrandi. Sífelldar raðir úti um allt, ekki hægt að kaupa bjór í matvöruverslunum, ekki til Cheerios né Cocoa Puffs og þeir kunna ekki að búa til hamborgara. Fóvetar.

Annars er bara fínt hérna. Sérstaklega finnst mér fólkið hérna vingjarnlegt og skemmtilegt og maturinn er alveg frábær.

Hugleiðing dagsins: Ef maður kyrkir strump, hvernig væri hann þá á litinn?

7 comments:

Unknown said...

takk fyrir falleg orð í minn garð

ps. hvernig er nýja V-hálsmáls peysan ;)

Siggi said...

Er fléttufræðingurinn ekkert að gera neinar fléttufræðitilraunir á heimavistinni?

ps. það væri gott ef þú værir búinn að taka til í herberginu þínu fyrir helgina svo ég þurfi ekki að byrja á að sópa gólfið eins og síðast

Beggi frændi said...

Uss, Bigginn farinn ad skjota a moti :)

Siggi: Thad er alltaf sama med thig.. . Er ekki best ad eg setji thig i einhverja thraut bara?

innevS said...

Jæja Upphaf, á ég að siga George Carlin og Steven Wright á þig fyrir ritstuld?

Btw, er bara ein tönn skökk? Rétt skal vera rétt.

Skrítið hvað sum getur verið skrýtið.

Beggi frændi said...

Ég get þá allt eins sigað Pétri Norðfirði og TT drengi á þig.

Með frábærri nálgun er bara ein tönn skökk.

Hvað gerir pabbi þinn?

innevS said...

Vinnur í sjoppu.

TT drengur? Norðfjörðinn þekki ég vel, ekki ertu að tala geðveiluhanabræður?

baldvine said...

Þeir eru fallegir þessir Svíar. Verst að þeir skuli allir með tölu vera hommar. Hins vegar vil ég frekar fá fréttir af flikkorna. Hvernig er það, hefurðu ekki séð kvenkyns Svía, Beggi?